þriðjudagur, ágúst 30, 2005

Sumarið búið:-)

Jæja nú er ágúst á enda og sumarið búið. En við verðum að líta fram á veginn og hlakka til þess sem er framundan. Skólastarfið komið á fullt og nóg að gera. Við getum farið að hlakka til jólanna. Það er svo gaman að hlakka til í langan tíma:-)

mánudagur, ágúst 29, 2005

Óveður

Heil og sæl
Það er nú gott að búa ekki í New Orleans þessa stundina þar sem fellibylurinn Katrín veður yfir með 10 m hárri flóðöldu og vindhraðinn 250 km á klst. Já það kann maður að meta Ísland þótt hitinn fari ekki mikið yfir 20 gráður á Celsius.
Sjá á fréttavef Morgunblaðsins

Fyrsta bloggið


Heil og sæl öll
Þetta er prufusíða í bloggi. Þetta er alveg nýtt útlit sem ég er að prófa.

Nú set ég hér inn mynd af brúðum. Það tókst.